Starfsemi Festi

Um Festi

Festi er eignarhaldsfélag fyrirtækja sem gegna lykilhlutverki á sínum mörkuðum: matvöru-, raftækja-, apóteka-, eldsneytis-, raforkusölu- og þjónustustöðvamarkaði, auk sterkra stoðfélaga í fasteigna- og vöruhúsarekstri.

Leiðarljós samstæðunnar er aukin lífsgæði – alla daga. Unnið er markvisst að því að einfalda lífið þannig að spara megi orku og tíma með aðgengilegri verslun og þjónustu. Lagt er upp úr því að vera skrefi á undan með betri tækni, vörum og þjónustu, þar sem snjallar lausnir og rétt vöru- og þjónustuframboð styðja við þarfir viðskiptavina og auka gæði upplifunar. Áhersla er lögð á að sækja tækifærin, hvort sem þau felast í því að þróa nýjar lausnir, bjóða viðbótarþjónustu eða fara í markvissar fjárfestingar sem styðja við þróun dótturfélaganna og vöxt samstæðunnar. Félög Festi eru sterkari saman en með samvinnu og áherslu á samlegð er unnið að því að auka virði fyrir viðskiptavini, hluthafa og starfsfólk.

Dótturfélög Festi eru rekstrarfélögin ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Krónan sem rekur samnefndar matvöruverslanir, Lyfja sem rekur lyfjaverslanir um allt land og N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og verkstæði. Einnig á Festi dótturfélögin Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu og Yrki eignir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar.

ELKO hefur fest sig í sessi sem þekktasta og stærsta raftækjaverslun landsins.

Verslanir félagsins eru sex talsins, þrjár á höfuðborgarsvæðinu, ein á Akureyri og tvær á Keflavíkurflugvelli. Viðskiptavinum vefverslunar fjölgar stöðugt en með miðlægu þjónustuveri og fjölbreyttum afhendingarmátum þjónustar vefverslun elko.is, viðskiptavini um land allt.

ELKO kappkostar að bjóða þekktustu vörumerkin og vinsælustu vörurnar á raftækjamarkaði á bestu fáanlegu verðum hér á landi, sem endurspeglast í loforði félagsins: „Það sem skiptir þig máli skiptir okkur máli.“

Framúrskarandi þjónusta, stöðug framþróun og góð fyrirtækjamenning lýsa vel daglegum áherslum stjórnenda og er félagið handhafi gullmerkis Íslensku ánægjuvogarinnar ásamt því að hafa verið menntafyrirtæki ársins. Markmið félagsins eru að hjálpa öllum með ótrúlegri tækni að gera lífið betra, þægilegra og ánægjulegra. Í þeim efnum má nefna breitt vöruúrval, verðöryggi, verðsögu, viðbótartryggingar, fjölbreytta fjármögnunarmöguleika, gjafakort án gildistíma og allt að 30 daga skilarétt. Allt eru þetta vel aðgreinandi þjónustuþættir og endurspegla áherslu félagsins á að byggja upp farsælt langtímasamband við viðskiptavini.

ELKO er með sérleyfissamning við norska félagið Elkjøp sem rekur um 420 verslanir á Norðurlöndunum. Elkjøp er í eigu breska raftækjarisans Currys PLC sem rekur um 710 verslanir í Bretlandi, Írlandi og Norður-Evrópu. Með sameiginlegum innkaupum nást betri kjör á þekktum vörumerkjum raftækja og njóta viðskiptavinir ELKO góðs af því.

Rekstur ársins

ELKO hlaut Gullmerki Ánægjuvogarinnar 2025.
ELKO var fyrst verslana til að bjóða lánalausnina ELKO Snjallgreiðslur, sem fékk afar góðar undirtektir.
Vefverslun elko.is fékk nýtt útlit á árinu, byggt á umfangsmiklum notendaprófunum.
Stafrænn söluráðgjafi, studdur af gervigreind, var settur í loftið á elko.is .
ELKO Lindir var veltuhæsta verslun Elkjöp, af yfir 400 verslunum og ELKO var útnefnt Sérleyfishafi ársins 2024/2025 hjá Elkjöp.
Með markvissum aðgerðum náðist metárangur í veikindahlutfalli starfsfólks.
Gervigreind var tekin í notkun í þjónustuveri til greiningar símtala.
Viðskiptavinaráð var stofnað til að efla þjónustu og styrkja samtal við viðskiptavini.
ELKO fékk viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA og var útnefnt framúrskarandi fyrirtæki CreditInfo í 11. sinn.
Öryggi var sett í forgang með ráðningu tveggja öryggisfulltrúa og auknum innbrotavörnum.
ELKO lenti í öðru sæti verslana í könnun VR um Fyrirtæki ársins og var tilnefnt af Brandr sem Besta vörumerki vinnustaðar 2025.

1,85 millj.

heimsókna í verslanir ELKO á árinu

83%

landsmanna heimsóttu elko.is á árinu

94%

ánægja viðskiptavina með þjónustu ELKO

4,21 af 5

í ánægjueinkunn hjá starfsfólki ELKO á árinu

Framtíðarhorfur

ELKO starfar eftir skýrri stefnu og framtíðarsýn: að eiga ánægðustu viðskiptavini á raftækjamarkaði. Undanfarin sex ár hefur starfsfólk félagsins unnið markvisst að þessu markmiði með hnitmiðaðri aðgerðaráætlun. Sá árangur náðist að fullnustu í lok árs 2025 þegar ELKO hlaut Gullmerki Íslensku ánægjuvogarinnar. Félagið mun halda áfram á þessari vegferð á komandi árum og styrkja þannig enn frekar stöðu sína á markaði. Áhersla verður lögð á fimm lykilflokka til árangurs: verslanir, þjónustu, stafræna þróun, sjálfbærni og mannauð.

Fjölmörg verkefni eru fram undan til að efla ELKO enn frekar. Eitt stærsta verkefnið er innleiðing nýs tölvukerfis í byrjun árs, sem mun opna dyr að frekari tækifærum til nýsköpunar og framþróunar. Á sviði mannauðsmála verður þjálfun og fræðsla þróuð áfram og hið öfluga mannauðsstarf félagsins eflt enn frekar. Jafnframt verður lögð áhersla á að styrkja úrlausnir í þjónustuáskorunum og auka framboð viðbótarþjónustu samhliða vörum.

Félagið mun áfram leggja ríka áherslu á stafræna þróun og styðja við áframhaldandi vöxt vefverslunar ELKO, sem hefur fest sig í sessi sem arðbærasta verslun félagsins. Þá verður lögð aukin áhersla á fjármögnunarþjónustu fyrir viðskiptavini. ELKO mun jafnframt halda áfram að styrkja hringrásarhagkerfi raftækja og leita sjálfbærra og arðbærra lausna fyrir meðhöndlun raftækjaúrgangs. Fyrirtækið hyggst stækka við sig með opnun nýrrar verslunar í Smáralind og leggja aukna áherslu á ferðamannastaði með sjálfsalalausnum. Jafnframt verður kapp lagt á að þróa nýjar þjónustur sem auka tekjur félagsins án þess að skerða núverandi framboð.Í samskiptum við viðskiptavini verður gagnsæi, traust og góð þjónusta höfð að leiðarljósi til framtíðar og er það trú stjórnenda að loforð fyrirtækisins sé grundvöllurinn að góðum rekstri, áframhaldandi vexti og góðu langtímasambandi við viðskiptavini.

Í samskiptum við viðskiptavini verða gagnsæi, traust og framúrskarandi þjónusta áfram höfð að leiðarljósi. Það er trú stjórnenda að loforð fyrirtækisins sé undirstaða trausts reksturs, áframhaldandi vaxtar og farsæls langtímasambands við viðskiptavini.

Það sem skiptir þig máli skiptir okkur máli!

Krónan er leiðandi lágvöruverðsverslun sem leggur mikla áherslu á lágt vöruverð og ferskleika ásamt því að uppfylla fjölbreyttar þarfir viðskiptavina.

Fyrsta Krónuverslunin var opnuð árið 2000 og hefur markaðshlutdeild aukist jafnt og þétt frá upphafi, en ekki síður á síðastliðnum árum.  Þar hefur breytt nálgun í mörkun, markaðssetningu, upplifun í verslunum og mikil áhersla á samfélagsábyrgð, umhverfismál og lýðheilsu haft sitt vægi. Aðgreining Krónunnar liggur meðal annars í því að koma fjölbreyttu vöruúrvali á sem ódýrustu verði til viðskiptavina og að einfalda líf þeirra með stafrænum lausnum. Krónan hlaut Svansvottun árið 2019 og er eina Svansvottaða dagvöruverslunin á Íslandi í dag. Krónan fer sínar eigin leiðir og vill ryðja brautina í þróun matvöruverslana á Íslandi.

Framtíðarsýn Krónunnar er að gera heilsusamlegan og sjálfbæran lífstíl að daglegum venjum allra. Þessi framtíðarsýn er leiðarljós starfsfólks Krónunnar, sem leggur metnað sinn í að hlusta á viðskiptavini og þróa nýjar leiðir til að einfalda dagleg innkaup og bjóða upp á jákvæða heildarupplifun, meðal annars með snjöllum lausnum.

Framtíðarsýn Krónunnar er að gera heilsusamlegan og sjálfbæran lífstíl að daglegum venjum allra. Þessi framtíðarsýn er leiðarljós starfsfólks Krónunnar, sem leggur metnað sinn í að hlusta á viðskiptavini og þróa nýjar leiðir til að einfalda dagleg innkaup og bjóða upp á jákvæða heildarupplifun, meðal annars með snjöllum lausnum.

Starfsfólkið er lykillinn að velgengni félagsins og er mikið lagt upp úr samheldni og jákvæðu starfsumhverfi þar sem fjölbreytileika er fagnað. Íslenskt hugvit keyrir áfram nýsköpun, en tækni- og sjálfbærnilausnir eru þróaðar með öflugu teymi þar sem viðskiptavinurinn og upplifun hans eru í fyrirrúmi. Þetta hefur skapað sérstöðu fyrir Krónuna á markaðnum eins og mælingar sýna. Krónan þykir nútímalegri, umhverfisvænni og framsæknari en aðrar matvöruverslanir samkvæmt mælingum Vörumerkjavísitölu Brandr. Krónan mældist einnig með ánægðustu viðskiptavinina á matvörumarkaði í níundi skipti samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni árið 2025.

Rekstur ársins

Krónan hlaut Íslensku ánægjuvogina á matvörumarkaði fyrir árið 2025, níunda árið í röð.
Krónan hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í umhverfis- og loftslagsmálum frá Samtökum Atvinnulífsins.
Snjallverslun bætti við sig 24 afhendingarstöðum á landsbyggðinni á árinu.
Krónan hefur þróað nýjan sjálfsafgreiðslukassa sem nú er í prufu í Krónunni Lindum, sem liður í áframhaldandi snjallari tækninýjungum og þjónustuframboði.
Krónan mun opna 1.500 fermetra verslun á Höfn í Hornafirði árið 2026. Þetta verður 27. verslun Krónunnar og sú tíunda sem er staðsett á landsbyggðinni.
Stórglæsileg Krónuverslun opnuð við Fitjabraut í Njarðvík -  2300 fm á stærð og hefur fengið gríðarlega góðar móttökur viðskiptavina á Suðurnesjum.
Krónan hlaut Sjálfbærniásinn 2025, annað árið í röð.
Krónan er Framúrskarandi fyrirtæki CreditInfo og handhafi Jafnvægisvogar FKA.
Krónan varð 25 ára árið 2025 og þetta hefur sannarlega verið algjör veisla! Ný herferð fór í loftið "Algjör veisla í 25 ár!"
Glæsileg enduropnun Krónunnar í Vallakór með áherslu á betri upplifun fyrir viðskiptavini ásamt nútímalegri og sjálfbærari lausnum til framtíðar.

45 þús.

viðskiptavinir skönnuðu og skunduðu á árinu 2024

109 þús.

notendur Krónuappsins

1,3 millj.

afgreiðslur fóru í gegnum skannað og skundað á árinu

9 ár í röð

ánægðustu viðskiptavinirnir á matvörumarkaði

Framtíðarhorfur

Krónan horfir til framtíðar með bjartsýni og ábyrgð, með það að leiðarljósi að einfalda daglegt líf fólks um land allt. Við munum áfram byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið með öflugri stafrænni þróun, ábyrgri verðstefnu og lausnum sem gera innkaup þægilegri, hraðari og aðgengilegri fyrir heimili og fyrirtæki.

Stafræn þjónusta verður áfram lykilþáttur í framtíðarsókn Krónunnar en útvíkkun snjallverslunar í um 90 póstnúmer á síðastliðnum árum sýnir fram á skýra eftirspurn eftir lausnum sem spara tíma og einfalda daglegt amstur.  Krónan mun halda áfram að þróa snjallverslun, vef og app með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi. Sama verð um land allt, bæði í hefðbundnum verslunum og í snjallverslun, er grundvallaratriði í þeirri sýn og tryggir jafnræði og gagnsæi óháð búsetu.

Uppbygging verslana er jafnframt mikilvægur hluti af framtíðarsýn félagsins. Endurnýjun verslunar í Lindum, stærsta yfirhalning sem Krónan hefur ráðist í til þessa, mun skila nútímalegri, sjálfbærari og notendavænni verslunarupplifun. Opnun nýrrar 1.300 fermetra verslunar á Höfn í Hornafirði er framundan og mun styrkja þjónustu við íbúa svæðisins og nærliggjandi byggðir. Jafnframt hefur Krónan fest sér lóð í Urriðaholti þar sem ný verslun verður opnuð á komandi árum.

Krónan lítur á það sem sitt hlutverk að standa með heimilum landsins í krefjandi efnahagsumhverfi. Með markvissum aðgerðum, þar á meðal verðlækkun á öllum Grøn Balance vörum í upphafi árs, leggur félagið áherslu á að gera ábyrgt, heilnæmt og sjálfbært val aðgengilegra. Með því nýtir Krónan stærð sína og áhrif til að skapa raunverulegt virði fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild til framtíðar.

Lyfja er eitt elsta apótek landsins en kom inn í samstæðu Festi árið 2024.

Lyfja er eitt sterkasta vörumerki Íslands og það þekktasta á sínum markaði samkvæmt markaðs- og viðhorfskönnunum. Félagið starfrækir í dag 44 apótek, útibú og sérverslanir hringinn í kringum landið auk vefverslunar og Lyfju appsins. Hjá Lyfju starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi.

Framtíðarsýn Lyfju er að auka lífsgæði og efla heilsu viðskiptavina. Lyfja vinnur markvisst að því að skapa sér aðgreiningu á markaði með framúrskarandi þjónustu og upplifun. Þannig er stefnumarkandi nýsköpunarverkefnum forgangsraðað líkt og sálfræðiþjónustu í appinu. Lyfju appið hefur gjörbreytt þjónustuupplifun við að leysa út lyf, versla heilsutengdar vörur og býður þjónustu óháð búsetu enda er appið margverðlaunað fyrir hönnun, þróun og notendaupplifun. Lyfja leggur ríka áherslu á að vera til staðar fyrir viðskiptavini á sinni heilsuvegferð. Með samheldnu og faglegu Lyfjuliði um allt land mun félagið halda áfram að stíga stefnumarkandi skref til framtíðar.

Rekstur ársins

Lyfju appið hlaut tvenn verðlaun á SVEF, app ársins og hönnun og viðmót ársins.
Met ár í Lyfju appinu, 36% veltuaukning frá fyrra ári.
Aðgengi að sálfræðiþjónustu í gegnum Lyfju appið með sálfræðingum Mín líðan.
20% veltuaukning á nýjum vef Lyfju á árinu en nýr vefur Lyfju var settur í loftið á árinu þar sem viðskiptavinir geta verslað lyfseðilsskyld lyf, lausasölulyf og aðrar vörur fyrir heilbrigði og vellíðan.
Fyrsti lyfjaróbot Lyfju var tekinn í notkun á Smáratorgi - nútímatæknilausn sem eykur skilvirkni og styður við aukna lyfjafræðilega ráðgjöf til viðskiptavina
Lyfja tilnefnd sem vörumerki ársins hjá Brandr.
Lyfja hlaut Jafnvægisvog FKA og er fyrirmyndar-fyrirtæki hjá Creditinfo.
Metaðsókn á viðburði á vegum Lyfju á árinu – fræðsluviðburður með húðlækni um húðumhirðu barna og vellíðunarviðburður fyrir kvenheilsuna.
Lyfja opnaði endurbættar verslanir á Egilsstöðum, Neskaupstað, Reyðarfirði og Garðatorgi.
Vöggugjöf Lyfju veitt í 11. sinn, gjöf til verðandi og nýbakaðra foreldra en alls hafa verið gefnar 20.000 Vöggugjafir frá Lyfju til verðandi foreldra.
Aukið aðgengi að fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu í samstarfi við Retina risk með fyrirbyggjandi augnskimun fyrir fólk með sykursýki.

16%

aukning í vörum vottaðar "Hrein vara í Lyfju" frá fyrra ári

36%

veltuaukning í Lyfju appinu milli ára

4,39 af 5

í einkunn á mati á góðum starfsanda innan starfshópsins

35%

aukning í heyrnarmælingum milli ára

Framtíðarhorfur

Lyfjuliðið vinnur markvisst að því að uppfylla framtíðarsýnina um að auka lífsgæði og efla heilsu. Lyfja mun áfram vinna að aðgreiningu á markaði í gegnum upplifun, þjónustu, þjálfun og menningu. Unnið verður að stefnumarkandi verkefnum með það að markmiði að styrkja enn frekar stöðu félagsins á apóteksmarkaði. Nýjar tekjustoðir og þjónustuþættir verða þróaðir til að sækja frekari vöxt í gegnum nýsköpun auk þess sem Lyfja mun áfram byggja á þeim sterku stoðum sem felast í öflugu eignarhaldi og vaxandi dótturfélaginu Heilsu. Stærstu verkefni ársins eru skilgreind í takt við vegferð fyrirtækisins og miða að því að mæta þörfum viðskiptavina, með aðgengilegri þjónustu þar sem þörfin er mest. Markvisst verður unnið að þjónustumarkmiðum Lyfju og að efla færni til framtíðar innan Lyfjuliðsins með öflugri fræðslu, þjálfun og endurgjöf til starfsfólks. Áherslur Lyfju eru heilbrigði og vellíðan, og verður vöruval áfram þróað í þá átt ásamt áherslu á heilsueflandi fræðsluefni.

Lyfja sér mikil tækifæri í að koma sterkar inn í fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu og byggja á sínum faglega grunni. Tækifæri felast í stafrænni þróun sem getur létt á heilbrigðiskerfinu og bætt aðgengi að heilsutengdri þjónustu. Mikilvægt er að það takist að ná samtali við hið opinbera um regluverk og umhverfi nýsköpunarverkefna til að geta mætt þörfum markaðarins og stutt við heilbrigðiskerfið okkar.

N1 á sér sterkar rætur í íslensku samfélagi og er eitt öflugasta orku- og þjónustufyrirtæki landsins, með starfsstöðvar víðs vegar um landið.

Starfsemi félagsins er fjölbreytt en byggir á því meginhlutverki að einfalda daglegt líf fólks og fyrirtækja með orku, hraðri þjónustu og snjöllum lausnum.

Verkstæði N1 sinna öllum helstu þáttum almenns viðhalds bifreiða og á þjónustustöðvum félagsins er boðið upp á fjölbreytt úrval bíla- og rekstrarvara, ásamt veitingum og afþreyingu fyrir fólk á ferðinni. Með kraftmikilli þjónustu, víðtæku vöruúrvali og þéttu þjónustuneti heldur N1 samfélaginu á hreyfingu og mætir kröfum viðskiptavina með lausnum og þjónustu sem falla að þeirra orkustigi.

N1 leggur ríka áherslu á að sýna samfélagi og umhverfi virðinguog leggja sitt af mörkum til öflugs mannlífs með stuðningi við góð málefni um allt land. Félagið er jafnframt virkur þátttakandi í orkuskiptum framtíðarinnar með uppbyggingu rafhleðslustöðva á þjónustustöðvum sínum, bæði undir eigin merkjum og í samstarfi við Tesla, auk smásölu raforku til heimila og fyrirtækja.

Sterkur og samhentur hópur starfsfólks er hornsteinn starfsemi N1 og skapar traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt og þróun. Með faglegri þjónustu á starfsstöðvum um land allt og öflugri fyrirtækjaþjónustu fyrir allar greinar atvinnulífsins vinnur N1 markvisst að því að mæta þörfum viðskiptavina í dag og til framtíðar.

Rekstur ársins

N1 bætti við samtals 50 nýjum hleðslustæðum á árinu (40 í samstarfi við Tesla) og skipti út 20 tengjum fyrir nýrri og áreiðanlegri stöðvar.
Framkvæmdir hófust við nýtt og stærra dekkjahótel og þjónustumiðstöð fyrir atvinnutæki við Borgahellu.
30% aukning hjá vegaaðstoð N1.
Magnús Hafliðason hóf störf sem framkvæmdastjóri N1 þann 1. mars og Reynir Leósson tók um leið við sem aðstoðarframkvæmdastjóri.
Sjálfsafgreiðslulausnir innleiddar á fjölda þjónustustöðva
Ný sjálfsafgreiðslustöð ásamt hraðhleðslustöðvum opnaðar á Fiskislóð í Reykjavík.
Stöðin mín kynnt i N1 appinu þar sem viðskiptavinir velja hvar þeir fá lægsta verðið á dælu og hraðhleðslu.
Mikill vöxtur í fjölda N1 korthafa – metár í nýskráningum og notkun á N1 appinu jókst um 40% á árinu.
Þjónustustöð N1 Skógarseli lokað sem hluti af samkomulagi við Reykjavíkurborg. Á sömu lóð mun rísa íbúabyggð sem Yrkir vinnur að í samstarfi við borgina.

1.500+

kaffibollar seldir á hverjum degi

396 þús.

Dropp sendingar afhendar

128 þús.

dekk í hýsingu fyrir viðskiptavini í lok árs

134 millj.

N1 punktar söfnuðust hjá korthöfum

Framtíðarhorfur

N1 gegnir lykilhlutverki í innviðum íslensks samfélags og rekur víðtækasta net eldsneytisafgreiðslu landsins. Félagið er stolt af því að veita örugga og aðgengilega þjónustu um allt land og tryggja að fólk og fyrirtæki hafi ávallt aðgang að orku og nauðsynlegri þjónustu sem knýr áfram samfélagið.

Vegferð N1 er drifin áfram af markmiði félagsins um að verða fyrsta val viðskiptavina um allt land þegar kemur að orku, ferðalögum og þjónustu. Undanfarin ár hafa orkuskipti og þróun nýrra lausna mótað framtíðarsýn félagsins. Ljóst er að engin ein orkulausn mun leysa jarðefnaeldsneyti alfarið af hólmi, heldur verður þróunin fjölþætt og misjöfn eftir eðli farartækja og búnaðar. Lengst er komið í orkuskiptum fólksbíla, á meðan vöruflutningar og stórar vinnuvélar reiða sig enn að stórum hluta á jarðefnaeldsneyti. N1 stefnir að því að uppfylla orkuþarfir einstaklinga og fyrirtækja á öllum stigum orkuskipta og vera ráðgefandi og traustur samstarfsaðili í þeirri vegferð.

Leiðarljós N1 er að létta enn einn daginn, hvort sem það snýr að hversdegi einstaklinga, rekstri fyrirtækja eða upplifun viðskiptavina almennt. Bílaþjónusta félagsins, sem sinnir meðal annars smur- og dekkjaþjónustu, dekkjahótelum og leigu á nagladekkjum, hefur vaxið jafnt og þétt og nýtur trausts fyrir gæði og áreiðanleika. Bílaþvottur N1 hefur styrkt sig í sessi sem hágæða þjónusta og mun félagið opna fleiri staðsetningar á komandi ári. Þjónustustöðvar N1 eru mikilvægir áningarstaðir fyrir fólk á ferðinni. Áhersla verður lögð á að efla vöruúrval og þjónustu enn frekar, þannig að hvert stopp á N1  verði þægilegra, fljótlegra og léttara.

Bakkinn vöruhótel sérhæfir sig í vöruhýsingu, pökkun, vörumerkingu, afgreiðslu og dreifingu á vörum fyrir viðskiptavini sem kjósa að úthýsa sinni vöruhúsastarfsemi að einhverju eða öllu leyti.

Félagið rekur tvö vöruhús á höfuðborgarsvæðinu þar sem boðið er upp á hágæða þjónustu til viðskiptavina.

Vöruhúsin eru útbúin til að geta þjónað margvíslegum þörfum, allt frá hýsingu á þurrvörum og raftækjum til hýsingar á margvíslegum tegundum spilliefna. Í báðum vöruhúsum eru sjálfvirkir turnskápar fyrir smávörur sem stuðla að hagkvæmni og skilvirkni í vörumeðhöndlun. Sérstök áhersla er lögð á gæðaþjónustu, gæðaeftirlit og öryggi í starfseminni.

Starfsemi Bakkans er ómissandi hlekkur í aðfangakeðju samstæðunnar þar sem Krónan, ELKO og N1 eru lykilviðskiptavinir. Félögin treysta á gæði, hagkvæmni, hraða og áreiðanleika þjónustunnar en einnig á sérþekkingu og stöðuga þróun vöruhúsastarfseminnar. Markmið félagsins er að vera í fremstu röð meðal vöruhúsa landsins með áreiðanlegri og hagkvæmri þjónustu sem mætir öllum helstu kröfum og væntingum viðskiptavina.

Rekstur ársins

Uppbygging á kælivöruhúsi þar sem Bakkinn mun hýsa grænmeti og ávexti fyrir Krónuna.
Skrifstofan flutt á 2.hæð í Skarfagörðum eftir framkvæmdir í rými sem áður stóð autt.
Nýtt skipurit var innleitt með nýjum hlutverkum – afmarkaðri verkefni og skýrari ábyrgð til að styðja við aukna þjónustu.
Farið í stefnumótunarvinnu með starfsfólki.
Skrifstofa Heilsu flutt í Bakkann.
Aukin áhersla á öryggismál með uppsetningu á betra myndavélakerfi og öryggiskerfi.
Bakkinn hlaut Jafnvægisvog FKA.
Aukið upplýsingaflæði til starfsmanna –m.a. með reglulegum upplýsingafundum og skýrari samskiptaleiðum.

23 þús.

fermetrar vöruhúsa

70 þús.

staðsetningar og hólf fyrir vörur

17

þjóðerni starfa í Bakkanum

43 þús.

viðskiptavinir heimsóttu Bakkann á árinu

Framtíðarhorfur

Framundan hjá Bakkanum er áframhaldandi stefnumótunar- og umbótavinna þar sem markmiðið er að auka skilvirkni, bæta þjónustu og styrkja grunnrekstur félagsins. Unnið verður að frekari bestun í báðum vöruhúsum, með betri nýtingu hólfa og svæða. Áhersla verður lögð á einföldun ferla, til að auka hagkvæmni og tryggja áreiðanlega þjónustu við viðskiptavini. Öryggismál verða áfram í forgangi auk ýmissa verkefna sem snúa að því að efla mannauð og menningu Bakkans. Jafnframt verður kraftur settur í Lean-vegferð félagsins til að styðja við stöðugar umbætur, skýrari verkferla og bætta frammistöðu.

Yfirmarkmið félagsins snúa meðal annars að því að vera öruggasti hlekkur aðfangakeðjunnar og eftirsóttur samstarfsaðili. Bakkinn er hjarta samstæðu Festi og lykilstoð í árangri systurfélaga og samstæðunnar. Í því samhengi er opnun nýs kælivöruhúss merkur áfangi, en þar mun Bakkinn hýsa grænmeti og ávexti fyrir Krónuna. Annar stór áfangi mun nást þegar framleiðslulína Heilsu flyst inn í Bakkann auk þess sem undirbúningur á flutningi vöruhúsastarfsemi Heilsu í Bakkann heldur áfram.

Með þessum verkefnum og áherslum er Bakkinn vel í stakk búinn til að bæta rekstur enn frekar og styðja við áframhaldandi vöxt samstæðu Festi.

Yrkir sérhæfir sig í útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis og eru fasteignir að mestu leyti í útleigu til dótturfélaga Festi.

Yrkir á hluta fasteigna í rekstri félagsins en sinnir einnig útleigu og umsýslu annarra fasteigna í samstæðu Festi. Fer því allur fasteignarekstur samstæðunnar í gegnum Yrki. Innan félagsins eru tvær deildir, framkvæmda- og öryggisdeild.  Allar framkvæmdir á fasteignum, lóðum og rekstrareiningum samstæðunnar, eru í umsjá framkvæmdadeildar, hvort sem er í viðhaldsverkefnum eða nýfjárfestingum. Öryggisdeild Yrkis hefur yfirumsjón með öryggismálum samstæðunnar.  Loks sinnir Yrkir verkefnum sem snúa að fasteigna- og lóðarþróun fyrir samstæðuna.

Markmið félagsins er að fasteignarekstur samstæðunnar sé rekinn sem arðbær og sjálfstæð rekstrareining til virðisaukningar fyrir eigendur. Heildarfjöldi fasteigna í eigu samstæðunnar í árslok 2025 var 91 og eru þær samtals um 97 þúsund fermetrar að stærð. Nýtingarhlutfallið er 99% en 90% fermetrafjöldans er notuð fyrir eigin rekstur.

Rekstur ársins

Yrkir fjárfesti í verslunarrýmum og -lóðum: Hvaleyrarbraut 3, Dalakofinn á Laugum og lóð við Urriðaholtsstræti 3.
Þróunarverkefnin í Stóragerði og Skógarseli seld með fyrirvörum um frágang skipulags.
Lokið við endurnýjun verslana hjá Krónunni í Grafarholti og Vallakór.
Unnið að því að reisa nýja N1 stöð á Akranesi.
N1 dælur lokuðu á Ægisíðu og ný fjölorkustöð opnuð á Fiskislóð og nýjum eldsneytisdælum komið upp við Geysi.
Stöðvar N1 endurnýjaðar á Hvolsvelli, Hringbraut og við Lækjargötu.
Skrifstofurými bætt í Skarfagörðum og framkvæmdir hófust á kælivöruhúsi.
Yfirhalningar hjá Lyfju á Garðartorgi, Smáratorgi, Egilsstöðum, Reyðarfirði og Neskaupsstað.

97 þús.

fermetrar fasteigna

104

eignir og lóðir í eigu samstæðunnar

99%

nýting á fasteignum í útleigu

90%

nýting á fasteignum í útleigu innan samstæðunnar

Framtíðarhorfur

Hjá Yrki verður áfram lagt upp úr því að byggja á víðtækri þekkingu og reynslu samstæðunnar á fasteignarekstri, framkvæmdum og öryggismálum til að tryggja hagkvæman og árangursríkan rekstur fasteignasafnsins og fyrirmyndar þjónustu við viðskiptavini. Áhersla verður áfram á að ná fram samlegð milli rekstrarfélaga samstæðunnar hvað varðar staðsetningar og aðbúnað. Jafnframt mun félagið viðhalda stuðningi við stjórnendur félaganna við mat og nýtingu nýrra fjárfestingarkosta og tækifærum sem þeim fylgja.

Framundan eru stór verkefni sem móta munu landslagið um ókomin ár. Næstu skref verða meðal annars þróun lóða undir breytta nýtingu samkvæmt samkomulagi við Reykjavíkurborg, bygging nýrrar fjölorkustöðvar N1 á Akranesi og frekari þróun uppbyggingarlóða í Urriðaholti, Hvolsvelli, Höfn og Selfossi. Einnig verður ráðist í umfangsmikil endurnýjunarverkefni í Skógarlind og á N1-stöðvum á Blönduósi og Egilsstöðum. Til viðbótar verður áfram lögð áherslu á uppbyggingu rafhleðslustöðva vítt og breitt um landið auk annarra viðhalds- og endurnýjunarverkefna á starfsstöðvum samstæðunnar.