Fjárhagur og ársreikningur

Ársskýrslan hefur að geyma samstæðuársreikning félagsins sem er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum í lögum um ársreikninga þar sem við á.
Samstæðuársreikningur Festi fyrir rekstrarárið 2025 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 5. febrúar 2026. Endurskoðandi félagsins, Deloitte ehf., hefur endurskoðað samstæðuársreikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.

Rekstur félagsins gekk vel á árinu en öll rekstrarfélögin bættu sinn rekstur milli ára. Fjöldi heimsókna og selt magn jókst í flestum verslunum en einnig hefur mikil áhersla á hagræðingu og nýtingu samlegðar í samstæðunni skilað miklum árangri
Hlutafjárupplýsingar
Skráningarupplýsingar og markaðsverð
Festi hf. er skráð á aðallista Nasdaq Iceland undir merkinu FESTI. Heildarmarkaðsvirðið nam 100,1 milljörðum króna í árslok 2025 sem er hækkun um 11,7 milljarða eða 13,3% frá ársbyrjun 2025. Hlutabréfaverð Festi stóð í 324 kr. í árslok 2025.
Hlutafé
Heildarhlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 312.548.552 kr. í árslok 2025. Eitt atkvæði fylgir hverjum einnar krónu hlut í félaginu. Eigendur hluta í félaginu eiga rétt til arðs í hlutfalli við eign sína við arðsúthlutun. Útistandandi hlutir í árslok 2025 námu 309.138.552 kr. en eigin hlutir námu þá 3.410.000 kr. eða 1,1% af útgefnu hlutafé.
Afkoma hlutabréfa
Hlutabréfaverð Festi var 284 kr. á hlut í ársbyrjun 2025 en stóð í 324 kr. á hlut í lok árs 2025. Hlutabréfaverðið hækkaði því um 14,1% á árinu 2025. Hæsta verð ársins nam 336 kr. á hlut en lægsta verðið nam 275 kr. á hlut.
Seljanleiki hlutabréfa
Festi hefur gert samninga við Arion banka og Landsbanka um að annast viðskiptavakt fyrir eigin reikning gegn þóknun frá félaginu. Bankarnir munu samkvæmt samningunum setja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu alla viðskiptadaga í viðskiptakerfi NASDAQ OMX Iceland.
Samkvæmt samningi við Arion banka skal fjárhæð hvers tilboðs að lágmarki vera kr. 100.000 að nafnvirði á gengi sem Arion banki ákveður, þó ekki með meira en 3% fráviki frá síðasta viðskiptaverði. Hámarksverðbil kaup- og sölutilboða er 1,5%. Eigi Arion banki viðskipti með bréf félagsins fyrir 50 millj. kr. að markaðsvirði eða meira í sjálfvirkri pörun innan dags, sem fer um veltubók bankans, falla niður skyldur um hámarksverðbil kaup- og sölutilboða innan þess dags. Ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 5,0% er Arion banka heimilt að auka hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða í 3% og ef verðbreyting innan viðskiptadags er umfram 10% er bankanum heimilt að auka hámarksverðbil í 4,5% þann daginn.
Samkvæmt samningi við Landsbanka, skal bankinn setja fram dagleg kaup- og sölutilboð að lágmarki 15 millj. kr. að markaðsvirði. Tilboð skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið. Hámarksmagn sem bankinn er skuldbundinn til að eiga viðskipti með á hverjum degi er 30 millj. kr. að nettó markaðsvirði sem reiknast sem mismunur á kaup- og sölutilboðum bankans sem gengið er að. Sé hámarksmagni dagsins náð, fellur niður skylda bankans til að setja fram tilboð á þeirri hlið sem fyllt hefur verið, þar til gengið hefur verið á tilboð bankans á mótlægri hlið og nettó viðskiptamagn er aftur komið undir daglegt hámark. Magnvegið hámarksverðbil milli kaup- og sölutilboða bankans ákvarðast af 10 daga flökti verðs hlutabréfa Festi. Sé 10 daga flökt minna en 30% skal magnvegið verðbil vera að hámarki 1,5% en sé 10 daga flökt jafnt og/eða hærra en 30% skal magnvegið verðbil vera 3%.
Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Kauphöll Nasdaq Iceland í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Lykilhlutföll
Fyrir árið 2025 þá nam arðsemi eigin fjár 13,9% samanborið við 10,5% árið áður. Grunnhagnaður á hlut nam 20,00 krónum og þynntur hagnaður á hlut 19,77 krónum. Gerðir voru kaupréttarsamningar við starfsmenn á árunum 2024 og 2025 og er þynntur hagnaður á hlut í krónum með áhrifum þeirra. Innra virði hlutafjár var 154,31 kr. í árslok 2025 og V/H hlutfallið 16,1 samanborið við 22,0 í árslok 2024. V/I hlutfallið var 2,1 og hækkar um 0,1 frá fyrra ári.
Hluthafar
Hluthafar félagsins í lok árs 2025 voru 1.729 en þeir voru 1.219 í upphafi ársins og fjölgaði því um 510 á árinu. Í árslok 2025 áttu 20 stærstu hluthafarnir 86,4% af útistandandi hlutafé félagsins
Eiginfjárstýring og arðgreiðslur
Stjórn Festi hefur mótað stefnu um fjármagnsskipan og arðgreiðslur en samkvæmt henni er miðað við að arðgreiðslur til hluthafa eða kaup eigin bréfa nemi að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs. Jafnframt er tiltekið í stefnunni að stefnt sé að því að EBITDA nemi 35% af framlegð, arðsemi eigin fjár sé yfir 12%, hlutfallið nettó vaxtaberandi skuldir/ EBITDA sé undir 3,5 og eiginfjárhlutfall sé á bilinu 35-40%. Á aðalfundi félagsins þann 5. mars 2025 var tekin ákvörðun um greiðslu 4,5 kr. í arð á hlut vegna rekstrarársins 2024. Arður var greiddur til hluthafa þann 9. apríl 2025, samtals að fjárhæð 1.401 millj. kr. eða 34,9% af hagnaði ársins 2024.
Á fyrrgreindum aðalfundi félagsins var jafnframt samþykkt að veita stjórn félagsins áframhaldandi heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins, eða fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins til að geta uppfyllt stefnuna. Á grundvelli þessarar heimildar voru 3.293.774 hlutir keyptir til ársloka 2025 fyrir um 1.013 millj. kr.
Samtals námu arðgreiðslur og endurkaup á árinu 2025, 2.414 millj. kr. eða 60,1% af hagnaði ársins 2024.
Fjárfestatengsl
Markmið fjárfestatengsla Festi er að veita markaðnum upplýsingar með það að markmiði að hlutabréfaverð fyrirtækisins endurspegli gangvirði félagsins á hverjum tíma. Til að ná því markmiði er stefnt að því að veita fjárfestum og greiningaraðilum nákvæmar fjárhags- og fyrirtækjaupplýsingar á réttum tíma þannig að þeir hafi nauðsynlega innsýn til að mynda faglegt álit á verðmæti félagsins og horfum þess á hverjum tíma.
Félagið fer að gildandi lögum og kröfum samkvæmt reglum og leggur viðeigandi upplýsingar fram með tilkynningum til Nasdaq Iceland.
Á heimasíðu félagsins, www.festi.is, eru að finna upplýsingar fyrir fjárfesta og greiningaraðila. Á síðunni eru upplýsingar um lykiltölur, árs- og árshlutareikninga, afkomutilkynningar, fjárfestakynningar, hluthafafundi, stærstu hluthafa, hlutabréfaverð, fréttir úr kauphöll, fjárhagsdagatal, samþykktir félagsins, innri reglur og fleira.
Rekstur ársins
Afkomuspá ársins
Félagið gaf út afkomuspá 5. febrúar 2025 fyrir árið 2025, þar sem EBITDA afkoman var áætluð 14.400 – 14.800 millj. kr. Félagið hækkaði afkomuspá sína tvisvar á árinu, síðast 30. október 2025, í tengslum við birtingu uppgjörs þriðja ársfjórðungs í 15.600 – 16.000 millj. kr. EBITDA niðurstaða ársins nam 16.001 millj. kr. sem er umtalsvert betri en fyrsta afkomuspá ársins gerði ráð fyrir. Aukin umsvif og hagræðingar í rekstri hjá öllum dótturfélögum Festi skýra betri EBITDA afkomu ársins, sérstaklega í dagvöru- og eldsneytishluta samstæðunnar þar sem velta og framlegð jókst mun meira en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Afkoma
Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu 2025 námu 175.727 millj. kr. samanborið við 156.707 millj. kr. árið áður sem er um 12,1% hækkun milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og matsbreytingar (EBITDA) nam 16.001 millj. kr. samanborið við 12.511 millj. kr. árið áður og hækkaði um 27,9% milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 10.111 millj. kr. samanborið við 7.723 millj. kr. sem er 30,9 % hækkun milli ára. Hrein fjármagnsgjöld námu 2.508 millj. kr. samanborið við 2.612 millj. árið áður sem er lækkun um 104 millj. kr. milli ára.
Hagnaður ársins 2025 nam 6.220 millj. kr. samanborið við 4.018 millj. kr. árið áður. Heildarafkoma ársins 2025 nam 6.295 millj. kr. samanborið við 6.422 millj. kr. árið áður en endurmat fasteigna að frádregnum tekjuskatti fært beint á eigið fé nam 2.437 millj. kr. á árinu 2024 en var ekkert á árinu 2025. Grunnhagnaður á hlut nam 20,00 kr. og þynntur hagnaður á hlut nam 19,77 kr. árið 2025 samanborið við 13,13 kr. og 13,05 kr. árið áður.
Rekstrartekjur
Rekstrartekjum er skipt upp í vöru- og þjónustusölu annars vegar og aðrar rekstrartekjur hins vegar. Vöru- og þjónustusala ársins 2025 nam 173.414 millj. kr. samanborið við 154.463 millj. kr. árið 2024 sem er 12,3% hækkun milli ára. Heilt yfir var aukin sala á flestum sviðum rekstrar en hafa ber í huga að Lyfja var eingöngu inni með 6 mánaða rekstrartölur árið 2024. Sala á dagvörum nam 87.548 millj. kr. og jókst um 11,7% milli ára. Eldsneytis- og raforkusala nam 39.278 millj. kr. og dróst saman um 1,5%. Sala raftækja nam 20.657 millj. kr., jókst um 7,3% milli ára og sala á öðrum vörum nam 11.308 millj. kr. og jókst um 11,4% milli ára. Lyfseðilsskyld lyf og lausasölulyf kom inn sem nýr flokkur hjá samstæðunni á miðju ári 2024 vegna kaupanna á Lyfju og nam sala í þeim flokki 14.622 millj. kr. árið 2025 samanborið við 6.841 á síðari helmingi ársins 2024.
Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður ársins 2025 nam 30.004 millj. kr. samanborið við 26.456 millj. kr. sem er hækkun um 13,4% milli ára. Laun og annar starfsmannakostnaður nam 21.676 millj. kr. samanborið við 18.385 millj. kr. árið 2023, sem er 17,9% hækkun. Stöðugildin á árinu 2025 voru 1.686 að meðaltali samanborið við 1.533 árið áður eða 10,0% fleiri. Meðal launa- og starfsmannakostnaður á mánuði per stöðugildi nemur 1.071 þús. kr. og hækkar um 7,2% milli ára.
Annar rekstrarkostnaður nam 8.328 millj. kr. samanborið við 8.071 millj. kr. sem er 3,2% aukning milli ára. Ef einskiptiskostnaður á árinu 2024 er undanskilinn þá var aukningin 13,8% milli ára.

Efnahagsreikningur
Eignir samstæðunnar námu 115.761 millj. kr. í árslok 2025 samanborið við 114.835 millj. kr. árið áður. Eigið fé í lok árs 2025 nam 47.684 millj. kr. en var 43.493 millj. kr. í lok árs 2024. Eiginfjárhlutfall var 41,2% í lok árs 2025 samanborið við 37,9% í lok árs 2024. Í lok árs 2025 voru heildarskuldir 68.077 millj. kr. samanborið við 71.341 millj. kr. í lok árs 2024.
Eignir
Fastafjármunir
Fastafjármunir námu alls 89.096 millj. kr. sem er 0,9% hækkun frá árinu áður. Viðskiptavild nam 18.367 millj. kr. og er óbreytt milli ára, rekstrarfjármunir námu 43.655 millj. kr. og aukast um 5,9% milli ára. Leigueignir námu 10.510 millj. kr. og minnka um 0,2% milli ára. Fjárfestingarfasteignir námu 6.731 millj. kr. og lækkuðu um 4,0% milli ára en um er að ræða fasteignir sem leigðar eru út til félaga utan samstæðunnar. Fjárfestingarfasteignirnar eru metnar að gangvirði og er hækkunin, 159 millj. kr., færð í gegnum rekstrarreikning.
Veltufjármunir
Veltufjármunir námu alls 26.665 millj. kr. og hækka um 0,5% milli ára. Vörubirgðir námu 14.179 millj. kr. sem er 0,4% aukning milli ára. Viðskiptakröfur námu 5.435 millj. kr. og lækka um 24,2% milli ára. Handbært fé í árslok 2025 nam 5.929 millj. kr. sem er hækkun um 45,5% milli ára.
Eigið fé
Eigið fé nam 47.684 millj. kr. í árslok 2025 samanborið við 43.493 millj. kr. í árslok 2024. Félagið greiddi arð til hluthafa fyrir 1.401 millj. kr. og keypti eigin bréf fyrir 1.013 millj. kr. á árinu. Í lánaskilmálum félagsins er gerð krafa um að eiginfjárhlutfall sé að lágmarki 25%. Í árslok 2025 var eiginfjárhlutfallið 41,2% samanborið við 37,9% í árslok 2024.
Skuldir
Langtímaskuldir
Langtímaskuldir námu alls 41.666 millj. kr. samanborið við 47.105 millj. kr. sem er 11,5% lækkun frá árinu áður. Vaxtaberandi skuldir námu 24.016 millj. kr. sem er 18,1% lækkun frá árinu áður. Samstæðan er með bæði verðtryggð og óverðtryggð langtímalán en þau eru öll í íslenskum krónum. Afborganir af langtímalánum námu 5.871 millj. kr. á árinu 2025 en félagið tók ný lán að upphæð 40 millj. kr. á árinu. Leiguskuldir námu 10.029 millj. kr. sem er 0,3% aukning frá árinu áður.
Skammtímaskuldir
Skammtímaskuldir námu alls 26.411 millj. kr. samanborið við 24.236 millj. kr. sem er 2.175 millj. kr. hækkun frá árinu áður. Vaxtaberandi skuldir námu 3.393 millj. kr. og hækka um 165 millj. kr. milli ára. Viðskipaskuldir námu 12.876 millj. kr. og hækkuðu um 1.088 millj. kr. milli ára. Aðrar skammtímaskuldir námu 8.706 millj. kr. og hækkuðu um 872 millj. kr. milli ára.

Sjóðstreymi
Handbært fé frá rekstri nam 15.784 millj. kr. á árinu 2025 og hækkar um 74,3% frá árinu 2024. Fjárfestingahreyfingar voru nettó neikvæðar um 4.425 millj. kr. en félagið fjárfesti fyrir 6.071 millj. kr. á árinu. Fjármögnunarhreyfingar voru nettó neikvæðar um 9.527 millj. kr. en félagið greiddi arð fyrir 1.401 millj. kr., keypti eigin bréf fyrir 1.013 millj. kr., greiddi afborganir af langtímalánum og leiguskuldum fyrir 7.349 millj. kr. og tók ný lán fyrir 40 millj. kr. Handbært fé í árslok 2025 nam 5.929 millj. kr. og hækkaði um 45,5% millj. kr. á árinu 2025.
Fjárfestingar
Fjárfestingar ársins 2025 námu 6.071 millj. kr. samanborið við 4.642 millj. kr. árið áður. Fjárfestingar ársins skiptast í fasteignir og lóðir fyrir 1.547 millj. kr., hugbúnað fyrir 841 millj. kr., aðra rekstrarfjármuni fyrir 3.681 millj. kr. og aðrar óefnislegar eignir fyrir 2 millj. kr. Meðal helstu verkefna samstæðunnar var bygging nýrrar verslunar Krónunar í Reykjanesbæ og endurnýjun verslunar á Fiskislóð og Vallakór ásamt endurbótum á starfsstöðvum félagsins víðsvegar um landið. Þá var áfram mikil fjárfesting í stafrænni þróun hjá öllum félögum á árinu.

Áhættustýring
Hér eru veittar upplýsingar um áhættur, markmið, stefnu og aðferðir samstæðunnar við að meta og stýra áhættunni, auk upplýsinga um rekstraráhættu. Markmið félagsins með áhættustýringu er að lágmarka þá áhættu sem það býr við með því að greina áhættuna, meta hana og hafa eftirlit með henni.
Eftirfarandi áhættur fylgja fjármálagerningum samstæðunnar:
- Lánsáhætta
- Lausafjáráhætta
- Markaðsáhætta (verðáhætta og vaxtaáhætta)
- Gengisáhætta
- Rekstraráhætta
Lánsáhætta
Lánsáhætta er hættan á því að félagið verði fyrir fjárhagslegu tapi vegna þess að viðskiptamaður eða mótaðili í fjármálagerningi getur ekki staðið við umsamdar skuldbindingar sínar. Lánsáhætta félagsins er einkum vegna viðskiptakrafna og annarra krafna.
Lánsáhætta ræðst einkum af aldri viðskiptakrafna, fjárhagsstöðu og starfsemi einstakra viðskiptavina, auk stöðu þeirra atvinnugreina sem stærstu viðskiptavinir félagsins starfa í, en það eru samgöngur, sjávarútvegur og verktakar. Um 18% (2024: 22%) af stöðu viðskiptakrafna í árslok eru vegna 30 stærstu viðskiptavina félagsins. Þar af nam staða stærsta viðskiptavinar 2% (2024: 3%).
Félagið hefur sett sér reglur um lánsviðskipti. Allir viðskiptavinir félagsins sem eru í lánaviðskiptum eru með lánamörk á viðskiptareikningi sem þeir geta ekki farið yfir. Lögaðilar þurfa almennt að leggja fram sjálfskuldarábyrgð eiganda sem nemur tveggja mánaða úttekt. Þetta á þó ekki við stærri aðila sem eru með gott lánshæfismat hjá CreditInfo.
Samstæðan færir niðurfærslu vegna væntra útlánatapa af viðskiptakröfum og öðrum kröfum. Við mat á niðurfærslu er byggt á sögulegri tapsreynslu, aldursgreiningu krafna, núverandi efnahagsástandi og framtíðarhorfum.
Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er hættan á því að samstæðan lendi í erfiðleikum með að standa við fjárskuldbindingar sem gerðar verða upp með handbæru fé eða öðrum fjáreignum. Markmið samstæðunnar er að hafa ætíð nægt laust fé til að mæta greiðsluskuldbindingum sínum þegar þær falla til.
Lausafjárstaða samstæðunnar var sterk í árslok 2025. Stjórnendur samstæðunnar telja hana vera vel í stakk búna til að mæta skuldbindingum sínum eftir því sem þær gjaldfalla. Veginn meðallánstími langtímalána samstæðunnar er um 9 ár og eru lánin öll uppgreiðanleg á lánstímanum. Samstæðan hefur einnig aðgang að lánalínu sem er að hámarki 500 millj. kr. Í árslok 2025 var ekkert dregið á lánalínuna.
Markaðsáhætta
Markaðsáhætta samanstendur af verðáhættu, vaxtaáhættu og gengisáhættu. Markmið félagsins er að stýra og takmarka markaðsáhættu við skilgreind mörk.
Verðáhætta
Veigamikil markaðsáhætta félagsins er verðáhætta vegna breytinga á heimsmarkaðsverði á olíu, en heimsmarkaðsverð hefur undanfarin ár verið afar sveiflukennt. Dregið er úr verðáhættu í sérsamningum við stærstu viðskiptavini félagsins auk þess sem móðurfélagið gerir afleiðusamninga til að verjast hluta af verðáhættu vegna innkaupa á eldsneyti. Samningarnir geta verið til nokkurra mánaða þar sem verð á olíu er fest í erlendri mynt og ná til þess hluta af eldsneytisinnkaupum samstæðunnar sem ekki er varinn með sérsamningum. Samningarnir eru gerðir upp með handbæru fé og eru færðir í rekstur með kostnaðarverði eldsneytis sem samningarnir tengjast en jákvæð afkoma af olíuvörnum nam 129 millj. kr. á árinu (2024: tap 1 millj. kr.). Gangvirði framvirkra samninga sem stóð á bundnum reikningi í eigin fé í lok árs 2025 nam 21 millj. kr. (2024: 5 millj. kr.).
Vaxtaáhætta
Samstæðan býr við sjóðstreymisáhættu vegna vaxtabreytinga fjárskulda sem eru með breytilegum vöxtum. Til að dreifa áhættunni er fjármögnun félagsins blanda af óverðtryggðum og verðtryggðum lánum.
Hækkun á vöxtum á uppgjörsdegi um eitt prósentustig (100 punkta) myndi lækka afkomu um 262 millj. kr. (2024: 326 millj. kr.) fyrir tekjuskatt vegna áhrifa á lántökur félagsins sem bera breytilega vexti. Útreikningurinn miðast við rekstraráhrif á ársgrundvelli. Lækkun vaxta um eitt prósentustig myndi hafa sömu áhrif en í gagnstæða átt.
Gengisáhætta
Öll viðskipti félagsins í erlendum myntum mynda gengisáhættu. Við mat á gengisáhættu er horft til greiðsluáhættu og uppgjörsáhættu. Markmiðið er að stýra gengisáhættu með þeim hætti að hagur félagsins sé sem best tryggður. Stærsti hluti innflutnings er kaup á vörum til endursölu af erlendum birgjum í USD og EUR en salan er að stærstum hluta í ISK. Sala í ISK er 96% (2024: 96%), USD 3% (2024: 3%) og aðrar myntir 1% (2024: 1%).
Næmnigreining
10% styrking íslenskrar krónu gagnvart eftirtöldum gjaldmiðlum í árslok myndi hafa hækkað (lækkað) afkomu félagsins fyrir tekjuskatt um eftirfarandi fjárhæðir:
10% veiking íslenskrar krónu gagnvart þessum gjaldmiðlum hefði haft sömu áhrif en í gagnstæða átt.
Rekstraráhætta
Rekstraráhætta er hættan á beinu og óbeinu tapi sem getur orðið vegna fjölda þátta í starfsemi samstæðunnar. Meðal áhættuþátta er vinna starfsmanna, tækni og skipulag sem beitt er.
Til að draga úr rekstraráhættu hefur meðal annars verið komið á viðeigandi aðgreiningu starfa, haft er eftirlit með lánsviðskiptum og fylgni við lög. Þá er unnið markvisst fræðslustarf með það að markmiði að allir starfsmenn fái nauðsynlega þjálfun tengda störfum þeirra fyrir félagið. Innleiddir hafa verið virkir verkferlar og reglur um afritatöku upplýsingakerfa. Þá eru unnar markvissar rekstraráætlanir og mánaðarleg uppgjör og frávik frá samþykktum áætlunum greind.
