Ávarp

Ávarp stjórnarformanns

Okkur gekk vel á síðasta ári. Við sóttum fram og kraftur og gleði einkenndi stemninguna. Við eigum hjarta viðskiptavina á fjölmörgum sviðum og stefnum ótrauð að því að styrkja sambandið frekar í ár. En hvernig? Við ætlum að auka virði fyrir viðskiptavini, starfsfólk og hluthafa með því að:

• Vera skrefi á undan, með betri vörum, þjónustu og tækni.
• Einfalda lífið, spara orku og tíma.
• Vera sterkari saman, með samvinnu og samlegð.
• Sækja tækifærin, með innri og ytri vexti.

Við stefnumótun fyrir Festi á liðnu ári var lagt upp með að ná utan um allt það góða sem við eigum og færa í orð til að varða leiðina fram. Útkoman er byggð á styrkleikum og einkennum sem við búum yfir og viljum efla.

Hvert og eitt félag í samstæðu Festi skilaði framúrskarandi árangri á síðasta ári. Árangurinn var ekki kreistur út, hann kom til af einstökum dugnaði, áhuga og krafti þeirra sem hér starfa undir forystu framsækins forstjóra og einstakrar framkvæmdastjórnar.

Á liðnu ári lagðist flest með okkur. Þannig verður það ekki alltaf, en við stöndum á heilbrigðum grunni og erum klár í hvað sem er.

Markmið þessa árs eru að reka okkar félög áfram vel og fjárfesta í framtíð þeirra. Við ætlum jafnframt að greina af kostgæfni tækifæri til að láta til okkar taka á nýjum sviðum í framtíðinni. Við munum ekki missa sjónar á því að okkar hlutverk er að bæta daglegt líf og skapa verðmæti í sátt við samfélagið.

Við erum tilbúin.

Hjörleifur Pálsson
Stjórnarformaður

Ávarp forstjóra

Við erum stolt af þeim árangri sem náðist á árinu og þökkum það tryggum viðskiptavinum og einstöku starfsfólki okkar um land allt – en ekki síst öflugri og framsýnni framkvæmdastjórn með tryggum stuðningi stjórnar Festi.

Árið 2025 skiluðu öll rekstrarfélögin sinni bestu afkomu frá upphafi. Hagnaður jókst um 54,8% milli ára, en 35,3% að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar árið 2024. Eiginfjárhlutfallið nam 41,2% í árslok og arðsemi eigin fjár 13,9% sem er hækkun um 3,4p.p. á milli ára. Félagið hefur þannig styrkt stöðu sína á flestum sviðum og stendur mjög fjárhagslega sterkt í árslok.

Bæting í rekstri byggir fyrst og fremst á sókn félaganna, hvert á sínum markaði, sem skilaði sér í söluaukningu á vörum og þjónustu þvert á félögin - en einnig skilaði hagræðing í rekstrarkostnaði, árangur rýrnunarátaks og innleysing samlegðar miklum ábata.

Við erum í sóknarhug fyrir réttu tækifærin – hvort sem þau eru innan eða utan samstæðu.

Festi hefur lokið stefnumótunarvinnu þar sem skerpt var á sýn og áherslum til framtíðar. Við tökum hlutverki okkar alvarlega enda þjónustum við landið allt og miðin, tryggjum viðskiptavinum okkar nauðsynjavörur og -þjónustu, nánast hvar sem er, hvenær sem er, á samkeppnishæfum verðum. Um leið einsetjum við okkur að skila arðbærum og góðum rekstri sem skapar verðmæti í sátt við samfélagið. Markmið okkar og sýn eru aukin lífsgæði – alla daga. Það er verðugt markmið sem tengir okkur öll og lyftir starfsanda upp á næsta stig – en aldrei hefur ánægja starfsfólks mælst jafngóð og í ár.

Sendi árnaðaróskir til allra þeirra sem komið hafa að rekstri samstæðunnar með einum eða öðrum hætti og hlakka til nýs öflugs rekstrarárs.

Ásta S. Fjeldsted
Forstjóri

Hápunktar ársins

  • Þróun og nýting stafrænna lausna og gervigreindar skila árangri: Hvort sem það er fyrir bætta upplifun og þjónustu í afgreiðslu til viðskiptavina eða í greiningum og einföldun ferla innanhúss, alls staðar er markmiðið að hámarka nýtingu tækninnar. ELKO tók upp sitt eigið neytendalánakerfi, Snjallgreiðslur ELKO, þar sem viðskiptavinir geta dreift greiðslum í allt að 36 mánuði. Viðtökur hafa farið fram úr björtustu vonum en fyrstu tvo mánuðina voru rúmlega 1.500 lán afgreidd til viðskiptavina. Fyrsti lyfjaróbotinn var tekinn í notkun hjá Lyfju Smáratorgi en hann skilar nú þegar stóraukinni skilvirkni fyrir afgreiðslu og heimsendingar samhliða því að aukinn tími gefst til lyfjafræðilegrar þjónustu við viðskiptavini. N1 setti í loftið „Stöðin mín“ við frábærar viðtökur viðskiptavina sem tryggir þeim lægsta verð á þeirri stöð sem hentar þeim best. Skráning á km stöðu í N1 appinu var einnig kynnt til leiks sem og að dæla eða hlaða beint á bílinn í gegnum appið. Lyfja og ELKO opnuðu nýja og endurbætta vefi á árinu og Lyfja bætti einnig við aðgengi að sálfræðiþjónustu í appinu. Krónan bætti við miklum fjölda afhendingastöðva fyrir Snjallverslun og þjónustar nú 96 póstnúmer landsins. Einnig eru glænýjir afgreiðslukassar Krónunnar að líta dagsins ljós um þessar mundir – og svona mætti áfram telja.
  • Á árinu var öflugri uppbyggingu og endurbótum haldið áfram hjá öllum félögunum, víðast hvar undir handleiðslu Yrkis eigna. Framkvæmdir hófust við nýtt dekkjahótel í Borgahellu og nýja bílaþjónustu og þjónustustöð á Akranesi, auk þess sem lóð var tryggð fyrir framtíðaruppbyggingu N1 á Selfossi. Krónan efldi verslunarnetið og tryggði fasteignir og lóðir fyrir frekari vöxt. Bakkinn vöruhótel er á lokametrunum að opna nýtt kælivöruhús og útvíkkar þar með starfsemi sína til að styðja enn betur við vöxt og bætt gæði ferskvara í Krónunni. Auk þess var unnið að bættri nýtingu eigin húsnæðis, m.a. með nýrri skrifstofuaðstöðu í Skarfagörðum þangað sem Heilsa flutti á árinu. Til viðbótar var farið í yfirhalningar og endurbætur á fjölda verslana innan samstæðunnar sem skiluðu aukinni umferð viðskiptavina.
  • Festi kláraði grunnlýsingu fyrir skuldabréfaútgáfu á fjórða ársfjórðungi og lauk sölu á sex mánaða víxli fyrir 1.300 millj. kr. að nafnverði á kjörum sem samsvara 7,94% flötum vöxtum. Um er að ræða fyrstu víxlaútgáfu í sögu samstæðu Festi hf. og viðtökur afar jákvæðar.
  • Fjöldi viðurkenninga skiluðu sér í hús: Krónan hlaut Íslensku ánægjuvogina níunda árið í í röð og ELKO annað árið í röð, Lyfju appið var valið app ársins hjá SVEF og fékk að auki verðlaun fyrir viðmót og hönnun, Krónan hlaut Sjálfbærniásinn í annað sinn og hlaut sérstaka viðurkenningu á Umhverfisdegi SA, N1 fékk umhverfisviðurkenningu tengt starfsemi sinni á Flugvöllum, ELKO var valið sérleyfishafi ársins hjá Elkjöp á öllum Norðurlöndunum og flest félög hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA sem og viðurkenningu CreditInfo fyrir framúrskarandi fyrirtæki.