Sjálfbærni

Samstæða Festi þjónustar landsmenn með nauðsynjavörur og -þjónustu og lítur á sjálfbærni sem órjúfanlegan hluta af traustum og framsýnum rekstri.

Í nýinnleiddri stefnu samstæðunnar er hlutverk Festi skilgreint sem að sameina drifkrafta leiðandi fyrirtækja til að bæta daglegt líf og skapa verðmæti í sátt við samfélagið. Er þar lögð áhersla á að hvorki almennur rekstur né vöxtur félagsins sé á kostnað umhverfisins – hvort sem horft er til fólks eða náttúru.

Festi birtir sjálfbærniupplýsingar sínar með sama hætti og í fyrra, annars vegar með samantekt á helstu atriðum ársins hér í ársskýrslunni og hins vegar með ítarlegra sjálfbærniuppgjöri byggðu á leiðbeiningum evrópska sjálfbærniskilastaðalsins (e. European Sustainability Reporting Standard) sem enn á eftir að innleiða á Íslandi. Uppgjörið er birt sem sjálfstætt skjal og er aðgengilegt í vafrastiku þessa ársskýrsluvefs.

Hápunktar í sjálfbærni hjá samstæðunni á árinu

ELKO tók á móti rafrækjum til endurvinnslu fyrir tæplega
21 m.kr.
á árinu.
Samdráttur í beinni losun gróðurhúsalofttegunda frá samstæðu Festi
22.243
hringferða á bensínbíl um landið.
Krónan bjargaði
2,4 millj.
matvæla með síðasta séns á árinu.
N1 var verðlaunað sem snyrtilegasta fyrirtækið í Rangárþingi eystra og fékk einnig umhverfisviðurkenningu frá Reykjanesbæ tengt starfseminni á Flugvöllum
Lyfja tók á móti
17,5 tonnum
af lyfjum og sprautunálum til förgunar á árinu
Öllu erlendu starfsfólki boðið upp á íslenskukennslu í samstarfi við bara tala. Kennslan fer fram í gegnum app/vefsíðu svo hægt er að stjórna sínu námi eftir hentugleika. 
N1 bætti við
50
hleðslustæðum á árinu (40 í samstarfi við Tesla)  og skipti út 20 tengjum fyrir nýrri og áreiðanlegri stöðvar.
Krónan hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í umhverfis- og loftslagsmálum frá SA og Sjálfbærniásinn annað árið í röð, en hann mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu í sjálfbærnimálum.
Áætlað kolefnisspor vara var birt á elko.is til að auðvelda viðskiptavinum að taka upplýstar og sjálfbærar ákvarðanir.
Festi, Bakkinn, ELKO, Krónan, og Lyfja hlutu öll Jafnvægisvog FKA fyrir jöfn kynjahlutföll í efsta stjórnendalagi. 
Viðskiptavinir Krónunnar komu í veg fyrir losun á
21 tonni
af koltvíoxíði með því að mæta með eigin poka í búðina.
Vöggugjöf Lyfju veitt í 11. sinn en alls hafa
20.000
Vöggugjafir  verið veittar frá Lyfju til verðandi og nýbakaðra foreldra.
Aðgengi veitt að sálfræðiþjónustu í gegnum Lyfju appið með sálfræðingum Mín líðan.

Stefna, markmið og árangur 2025

Helstu áherslur og sjálfbærnisigrar ársins

Á árinu 2025 var áfram byggt markvisst ofan á sjálfbærnivinnu samstæðunnar, með áherslu á skýrari forgangsröðun, betri gögn og sterkari innleiðingu hjá rekstrarfélögunum. Helst má nefna:

  • Kolefnisspor af beinni losun samstæðunnar dróst saman um 25% milli ára en samdráttinn má helst rekja til uppfærslu kælikerfa verslana yfir á umhverfisvænni orkugjafa auk þess sem munaði um aukna rafbílavæðingu innan samstæðunnar.
  • Ný sjálfbærnistefna samstæðunnar var innleidd, með uppfærðum langtímamarkmiðum og skýrari sýn á hvernig Festi skapar verðmæti í sátt við samfélagið (sjá nánar hér að neðan).
  • Stuðningur við dótturfélögin leiddi til þess að flest félög innleiddu nýjar umhverfisstefnur og -markmið í takti við yfirmarkmið samstæðunnar. Upplýsingar um annan árangur dótturfélaganna er að finna í sjálfbærniskýrslum þeirra en sem dæmi má nefna að ELKO fór að birta upplýsingar um kolefnisspor vara á vefsíðu sinni og Lyfja hóf birgjamat með sambærilegri nálgun og önnur félög samstæðunnar.
  • Áframhaldandi gagnavegferð skilaði enn nákvæmari upplýsingum um kolefnisspor og flokkunarhlutfall og nú hafa öll félög samstæðunnar aðgang að sjálfbærnimælaborði í rauntíma, sem styður bæði ákvarðanatöku og eftirfylgni með markmiðum.
  • Aukin áhersla var lögð á mannréttindi í virðiskeðjunni til að styrkja verklag og forvarnir í virðiskeðjunni. Afrakstur þeirrar vinnu mun koma fram nánar á næstu mánuðum.
  • Festi er áfram í flokki B1 hjá matsfyrirtækinu Reitun og yfir meðaltali markaðarins. Félagið fékk 82 stig af 100 mögulegum í UFS sjálfbærnimati en meðaleinkunn þeirra 45 fyrirtækja sem hafa farið í gegnum mat Reitunar var 73 stig eða flokkur B2. Kröfurnar aukast á hverju ári en heildareinkunn Festi hækkaði um tvo punkta milli ára og er félagið yfir meðaltali í öllum UFS flokkum.

Ný sjálfbærnistefna Festi

Á síðasta ári var samþykkt ný sjálfbærnistefna sem gildir fyrir allar einingar samstæðunnar og setur ramma utan um umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti. Við gerð stefnunnar var fyrst og fremst byggt á niðurstöðum tvöfaldrar mikilvægisgreiningar (e. double materiality assessment) sem framkvæmd var 2024, nýrri aðgerðaráætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og uppfærðri mannauðsstefnu samstæðunnar.

Helsta breytingin frá fyrri stefnu er sú að sett hafa verið fram skýr langtímamarkmið auk stuðningsaðgerða þar sem við á. Að auki voru félagslegir þættir brotnir niður í innri þætti sem snúa að eigin starfsfólki og ytri þætti sem snúa að virðiskeðjunni. Lykilmarkmið stefnunnar er markmið um nettónúll losun gróðurhúsalofttegunda hjá samstæðunni árið 2050 og markmið um nettónúll losun frá eigin rekstri árið 2031.

Staða lykilmarkmiða úr sjálfbærniskýrslu síðasta árs

Í árs- og sjálfbærniskýrslu síðasta árs voru skilgreind lykilmarkmið fyrir árið 2025 sem spanna umhverfisþætti (U), félagslega þætti (F) og stjórnarhætti (S). Hér að neðan má sjá yfirlit yfir markmiðin og stöðu þeirra ári síðar.

Staða lykilmarkmiða úr sjálfbærniskýrslu Festi 2025

Nánar verður farið yfir árangur í viðeigandi undirköflum hér á eftir og yfirlit yfir sjálfbærnimarkmið ársins 2026 má finna í lok kaflans.

Helstu atriði úr sjálfbærniuppgjöri

Á síðasta ári birti Festi í fyrsta sinn sjálfbærniuppgjör byggt á grunni tilskipunarinnar og leiðbeiningum ESRS. Innleiðing sjálfbærnitilskipunarinnar (e. Corporate Sustainability Reporting Directive) hefur enn ekki verið lokið hér á landi þar sem Evrópusambandið boðaði einföldun þess á síðasta ári (verkefni nefnt Omnibus). Festi birtir því sambærilegt sjálfbærniuppgjör og á síðasta ári. Skýrslan uppfyllir ekki allar skýringarkröfur sem ESRS gerir en greint er frá aðferðafræði og hvaða upplýsingar eru birtar í skýringum með einstökum mælikvörðum. Hluti skýrslunnar er staðfestur með takmarkaðri vissu af Deloitte.

Grunnur sjálfbærniuppgjörsins er útkoma tvöfaldrar mikilvægisgreiningar (e. double materiality assessment) sem Festi framkvæmdi árið 2024. Greiningin metur annars vegar hvernig sjálfbærniþættir geta haft fjárhagsleg áhrif á samstæðuna (e. outside-in) og hins vegar hvernig starfsemi og virðiskeðja samstæðunnar hefur áhrif á umhverfi og samfélag (e. inside-out). Niðurstöðurnar nýtast til að forgangsraða áherslum í stefnu, móta markmið og skilgreina hvaða málaflokkar teljast mikilvægastir í upplýsingagjöf samkvæmt ESRS. Niðurstöður Festi má nálgast í sjálfbærniuppgjöri félagsins.

Samantekt á völdum atriðum úr sjálfbærniuppgjörinu er að finna í næstu köflum um umhverfisþætti-, innri og ytri félagsþætti og stjórnarhætti en ítarlegri og umfangsmeiri upplýsingar eru að finna í uppgjörinu sjálfu sem nálgast má í vafrastiku ársskýrslunnar hér að ofan.

Umhverfis- og loftslagsþættir

Áherslur og árangur á árinu

Samstæða Festi leggur áherslu á að draga markvisst úr losun, ábyrga nýtingu auðlinda og að styðja við hringrásarhagkerfi með skýrum markmiðum og mælanlegum aðgerðum.

Losun gróðurhúsalofttegunda skiptist í umfang 1 (beinlosun), umfang 2 (keypt orka) og umfang 3 (losun í virðiskeðju). Hjá Festi eryfir 99% heildarlosunar frá virðiskeðjunni og því skiptir mestu að vinna markvisst með birgjum og flutningsaðilum til að ná raunverulegum árangri í aðdraga úr losun. Fyrstu verkefnin hafa þegar verið sett í gang í takt við ný og uppfærð markmið samstæðunnar en þau er að finna í sjálfbærnistefnu félagsinssem vísað var í fyrr í kaflanum.

Eitt þeirra markmiða sem var uppfært árið 2025 var lykilmarkmið samstæðunnar um nettónúll losun gróðurhúsalofttegunda, en það var brotið niður í markmið fyrir eigin rekstur og markmið fyrir heildarlosun. Festi skuldbindur sig til að vera með nettónúll losun í eigin rekstri árið 2031 en í heildarlosun árið 2050. Áður var markmið samstæðunnar að vera með nettónúll losun árið 2040 í takt við markmið Íslands, en miðað við núverandi og áætlaða eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti á Íslandi þótti nánast ómögulegt að ná því markmiði fyrir árið 2050.

Losunarbókhald

Við mat á losun er notast við aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol, alþjóðlegs fyrirtækjastaðals fyrir upplýsingagjöf um losun gróðurhúsalofttegunda. Á árinu var unnið áfram að því að bæta losunarbókhald samstæðunnar og gagnagæði svo það náist sem réttust mynd af heildarlosun félagsins og betur sé hægt að rekja breytingar sem verða milli ára. Vert er að taka fram að sökum uppfærslna á gögnum og nákvæmari reikningsaðferðum var losun fyrri ára endurreiknuð til að tryggja samanburðarhæfni. Af þeim sökum stemma ekki allar tölur í losunarbókhaldi ársins 2025 við þær tölur sem birtar voru í sjálfbærniskýrslu og sjálfbærniuppgjöri síðasta árs.

Helstu breytingar sem urðu á losunarbókhaldinu frá fyrra ári eru þær að útreikningar voru í auknum mæli byggðir á rafrænum reikningum og fjárhagsbókhaldi samstæðunnar, sem dró úr þörf fyrir áætlanir. Þá var umfang 2 endurreiknað með uppfærðum losunarstuðlum fyrir rafmagn og heitt vatn og jafnframt bættust við gögn frá fasteignum sem vantaði áður. Mestar uppfærslur voru á útreikningi á umfangi 3 þar sem nýir undirliðir bættust við og gögn fengust beint frá birgjum sem gerði okkur kleift að reikna kolefnisspor sumra seldra vara á nákvæmari hátt.

Athugið að í umfangi 3 er engin gögn að finna vegna flokka 8 og 10 af eftirfarandi ástæðum:
- Flokkur 8: Leigðar fasteignir á fyrri stigum virðiskeðju, fellur undir umfang 2
- Flokkur 10: Áframvinnsla seldrar vöru, á ekki við hjá Festi.

Umfang 1

Umfang 1 felur í sér beina losun samstæðunnar en hjá Festi er sú losun til komin vegna bruna eldsneytis og leka kælimiðla. Umfang 1 er sú losun sem auðveldast er fyrir fyrirtæki að hafa áhrif á og er því ánægjulegt að sjá 25% samdrátt milli ára. Unnið hefur verið markvisst að því undanfarin ár að skipta út eldri F-gasa kælikerfum samstæðunnar fyrir CO2 kælikerfi en þau fyrrnefndu hafa um 3.900x hærri losunarstuðul en þau síðarnefndu. Áfram verður unnið að útskiptum kælikerfa þar til öllum F-gasa kælikerfum samstæðunnar hefur verið skipt út árið 2031.

Losun vegna bruna eldsneytis hækkar lítillega milli ára, fyrst og fremst vegna aukinna umsvifa Snjallverslunar Krónunnar úti á landi. Þar hefur því miður ekki reynst mögulegt að nýta rafmagnsbíla fyrst um sinn. Til að draga úr losun vegna eldsneytisnotkunar farartækja setti Festi sér það markmið að 25% bílaflotans yrði orðinn rafvæddur árið 2025 að undanskildum vörubílum og stærri sendibílum. Niðurstaðan í byrjun árs var að 32% heildarbílaflotans var kominn á rafmagn og 35% ef vörubílar og stærri sendibílar voru ekki taldir með. Samstæðan hefur sett sér markmið um að draga úr losun vegna bruna jarðefnaeldsneytis í rekstri samstæðunnar um 90% í lok árs 2031 m.v. árið 2023.

Umfang 2 og samsetning orku

Til umfangs 2 telst óbein losun tengd rafmagni og hita fyrir eigin not sem er almennt lítill hluti losunar fyrirtækja á Íslandi. Óveruleg breyting varð á þeirri losun milli ára og hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa hélst í 96% milli ára. Fyrir rafmagn voru keypt upprunavottorð fyrir alla rafmagnsnotkun og er markaðstengd losun rafmagns því reiknuð sem 0.

Samstæðan hefur sett sér markmið um að draga árlega úr orkunotkun á fermetra (að undanskildri hleðslu rafbíla) og kortleggja og draga úr eigin vatnsnotkun.

Umfang 3

Til umfangs 3 telst óbein losun en hún kemur úr virðiskeðju samstæðunnar og er langstærsti hluti losunar Festi eða yfir 99%. Losun í umfangi 3 eykst um 1% milli ára og er sú hækkun nánast að öllu leyti til komin vegna nákvæmari gagna og útreikninga en áður. Helst munar um breytta nálgun fyrir kolefnisspor seldra vara hjá Krónunni þar sem gögn fyrir vörur með hátt kolefnisspor fengust beint frá birgjum sem gerði okkur kleift að fara yfir í magnbundna útreikninga í stað þess að áætla losun út frá verði (e. spend-based). Einnig bættist við losun vegna vöruflutninga beint frá birgjum til Krónunnar og losun vegna rafmagnssölu N1. Enn vantar gögn fyrir flokk 7 sem felur í sér ferðir starfsfólks til og frá vinnu. Erfitt hefur reynst að safna nauðsynlegra gagna til útreikninga en sem betur fer er ljóst að aðeins yrði um lítið hlutfall heildarlosunar að ræða.

Samstæðan hefur sett sér ýmis markmið til að hafa jákvæð áhrif á óbeina losun frá virðiskeðju t.d. með því að auka hluta sjálfbærra vara og þjónustu sem hlutfall af sölu ár frá ári.

Úrgangur frá rekstri

Samstæða Festi leggur áherslu á að draga úr sóun og auka endurvinnslu. Flokkunarhlutfall samstæðunnar er einn þeirra lykilmælikvarða sem fylgst er reglulega með en markmið samstæðunnar er að ná 90% flokkunarhlutfalli árið 2030.

Úrgangsstraumar samstæðunnar eru fjölbreyttir og samanstanda að mestu leyti af rekstrarúrgangi, svo sem umbúðum, matvælum, olíuleifum og úrgangi úr olíuskiljum frá þjónustustöðvum N1. Einnig kemur stór hluti úrgangs frá dekkjaverkstæðum N1, þar sem viðskiptavinum býðst að skila notuðum dekkjum til endurvinnslu. Að sama skapi tekur ELKO við raftækjaúrgangi frá viðskiptavinum til að tryggja að hann fari í réttan farveg.

Heildarúrgangur samstæðunnar lækkaði lítillega milli ára og flokkunarhlutfall jókst um 1,3 prósentustig og náði tæplega 75% árið 2025. Á árinu voru úrgangsgögn enn betur kortlögð og fundust þrír birgjar sem ekki voru hluti af útreikningum áður. Þessum gögnum var bætt við og endurreiknað fyrir öll ár. Eftir endurútreikning kom í ljós að flokkunarhlutfall ársins 2024 var 73,6% en ekki 77% líkt og talið var.

Kolefnisjöfnun

Festi og dótturfélög kolefnisjafna alla losun frá rekstri samstæðunnar, skilgreint sem umfang 1 og 2 auk úrgangs og viðskiptaferða úr umfangi 3, með kaupum á vottuðum kolefniseiningum.

Festi fjárfesti í eftirfarandi einingum á móti losun rekstrar árið 2025:

  • 3.993 vottaðar kolefniseiningar í Gold standard verkefninu Clean Cooking Project for Refugees, Host Communities, and Other Marginalized Communities in Bangladesh. Frekari upplýsingar hér.

Festi hefur einnig fjárfest í og unnið að langtímaverkefni í kolefnisbindingu innanlands með vottaðri nýskógrækt á eignarlandi félagsins að Fjarðarhorni í Hrútafirði. Kolefnisbinding með skógrækt hefur reynst árangursrík en auk þess að stuðla að bindingu kolefnis miðar Festi að því að styðja við atvinnusköpun á svæðinu, sem og að efla útivist og hreyfingu með viðeigandi aðstöðu fyrir gesti. Festi var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að skuldbinda sig til að skrá kolefnisbindingu í Loftslagsskrá Íslands samkvæmt kröfum gæðakerfis Skógarkolefnis og var það staðfest með undirritun verksamnings við Loftslagsskrá Íslands og Land og skóg (áður Skógræktin).

Verkefnið er nú í vottunarferli en það fól í sér gróðursetningu um 430 þúsund trjáplantna á um 180 hektara svæði. Samkvæmt uppfærðri áætlun er gert ráð fyrir að kolefnisbinding Festi á verkefnatímanum (50 ár) muni nema um 52 þúsund tonnum af CO2, en þessi tala gæti hækkað verði viðbótargróðursetning framkvæmd. Þegar trén hafa náð nægum vexti, eftir um 5-10 ár, verður binding kolefniseininga metin og vottuð af óháðum aðila, sem gerir Festi kleift að virkja einingarnar og telja á móti losun samstæðunnar.

Félagslegir þættir - innri og ytri

Innri félagslegir þættir: Mannauður

Áherslur og árangur á árinu

Festi og dótturfélög þess leggja mikið upp úr því að vera eftirsóknarverðir vinnustaðir sem laða að og halda í hæft og traust starfsfólk. Stefna Festi er að byggja upp heilsueflandi vinnustaði hjá öllum félögum samstæðunnar þar sem jafnrétti, öryggi og vellíðan starfsfólks er í forgrunni. Festi vill vera í fararbroddi þegar kemur að fræðslumálum og skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla hæfni sína og þekkingu. Rúmlega 2.800 manns af 62 þjóðernum og af öllum aldri starfa hjá samstæðunni á yfir 200 starfsstöðvum hringinn í kringum landið.

Á árinu var unnið að því að skilgreina og styrkja sameiginlegar áherslur samstæðunnar í mannauðsmálum. Í nýrri sjálfbærnistefnu voru skilgreind langtímamarkmið í samræmi við áherslur nýrrar mannauðs- og jafnréttisstefnu samstæðunnar sem innleidd var í byrjun árs 2026.

Helstu mannauðsmælikvarðar og skýringar

Helstu mannauðsmælikvarðar

Samstæða Festi leggur áherslu á fjölbreytileika og jafnrétti. Öll félög samstæðunnar eru jafnlaunavottuð samkvæmt ÍST 85:2012 staðli og kröfum Jafnréttisstofu. Það staðfestir að hjá félaginu er starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf ekki mismunað í launum. Munur á miðgildi launagreiðslna karla og kvenna var 0,02% á síðasta ári, þar sem miðgildi karla var 0,02% lægra. Öllu starfsfólki sem hefur íslensku ekki að móðurmáli er boðinn aðgangur að íslenskukennslu í gegnum appið Bara tala, og nýlega var farið að rýna niðurstöður vinnustaðagreininga með tilliti til fjölbreytileika til að meta betur inngildingu hjá samstæðunni.

Starfsmannavelta endurspeglar fjölbreytta starfsemi félaganna, árstímabundið álag og hátt hlutfall starfsfólks í hlutastarfi auk þess sem starfsstöðvar Festi eru oft fyrsti starfsvettvangur fólks. Hjá samstæðunni er 55% starfsfólks í hlutastarfi en starfsmannavelta í þeim hópi er umtalsvert meiri en í hópi starfsfólks í fullu starfi og mest er hún hjá yngsta aldurshópi starfsfólks.

Vinnustaðagreiningar eru framkvæmdar árlega til að mæla starfsánægju og líðan á vinnustað og eru niðurstöður rýndar með stjórnendum og starfsfólki, bornar saman við markmið og gripið til aðgerða þar sem við á. Ánægjulegt var að sjá heildaránægju starfsfólks hækka annað árið í röð, samhliða aukinni svörun milli ára. Þótt markmið hafi verið skilgreind fyrir aukna starfsánægju hefur áherslan verið lögð á aukna þátttöku í vinnustaðagreiningum svo niðurstöður sýni sem réttasta mynd. Langtímamarkmið Festi samstæðunnar er að ná 80% svarhlutfalli.

Hjá samstæðunni er rekin núll-slysastefna sem felur í sér að engin slys eru ásættanleg. Áhersla var lögð á vinnuvernd og öryggi hjá Bakkanum og N1 á árinu, en það eru þau félög samstæðunnar þar sem slys eru algengust. Áfram verður leitað leiða til að draga úr alvarlegum slysum hjá samstæðunni til framtíðar.

Öllu starfsfólki er boðið upp á velferðarpakka sem veitir aðgang að margvíslegri þjónustu sem stuðlar að betri andlegri og líkamlegri heilsu. Fylgst er með veikindahlutfalli í öllum félögum samstæðunnar og var ánægjulegt að sjá lækkun milli ára í kjölfar þess að aukin áhersla var lögð á fræðslu og forvarnir bæði til starfsfólks og stjórnenda. Áfram verður byggt á þeirri vegferð

Ytri félagslegir þættir: Neytendur, samfélag og mannréttindi í virðiskeðju

Áherslur og árangur á árinu

Samstæða Festi vill vera leiðandi í ábyrgri neytendamiðaðri þjónustu og vöruframboði, með áherslu á sjálfbærni, heilsueflingu, gagnavernd og upplýstar ákvarðanir neytenda. Samstæðan hefur alla tíð lagt mikið upp úr ábyrgum viðskiptaháttum og góðu samstarfi við birgja og þjónustuaðila en síðustu ár hefur aukin áhersla verið lögð á að stuðla að mannréttindum starfsfólks í virðiskeðjunni.

Nýlega uppfærð sjálfbærnistefna kveður á um að mannréttindi séu órjúfanlegur hluti af ábyrgum viðskiptaháttum samstæðunnar. Ákveðið var að skilgreina sérstakar áherslur og markmið fyrir félagslega þætti sem varða neytendur, samfélag og virðiskeðju. Meðal markmiða sem unnið er að má nefna bætt utanumhald og eftirfylgni með samþykkt siðareglna birgja og þjónustuaðila og svörun á birgjamati samstæðunnar. Auk þess er unnið að því að uppfæra samningsákvæði um mannréttindi hjá samstæðunni smám saman og innleiða sérstaka tilkynningagátt á ytri vef félagsins fyrir tilkynningar um mannréttindabrot í virðiskeðjunni.

Stjórnarhættir

Helstu áherslur og árangur á árinu

Félög Festi eru meðvituð um þau áhrif sem þau hafa á samfélagið allt með starfsemi sinni og leggja mikla áherslu á að stunda heilbrigða viðskiptahætti í hvívetna. Með góðum stjórnarháttum er lagður grunnur að traustum samskiptum við hagaðila og stuðlað að heilindum, gegnsæi og ábyrgð í stjórnun.

Skýr umgjörð hefur verið sett um stjórnarhætti með það að markmiði að tryggja ábyrg viðskipti og fagleg vinnubrögð í allri starfsemi. Á árinu var unnið að innleiðingu nýs gæðakerfis sem mun hjálpa félögum samstæðunnar að halda betur utan um fræðslu og ferla sem tengjast stefnum og reglum samstæðunnar. Dæmi um aðgerðir og markmið fyrir næsta ár eru að ljúka innleiðingu gæðakerfisins, hefja innleiðingu á nýju skjalakerfi og bæta núverandi ferli fyrir uppljóstrun.

Festi er hlutafélag skráð í Kauphöll Íslands og fylgir bæði viðurkenndum leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja og alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS). Frekari upplýsingar um stjórnarhætti félagsins má finna í stjórnarháttayfirlýsingu ársreikningsins og á vefsíðu félagsins.

Gögn tekin út/sannreynd af ytri aðila

Síðastliðin fjögur ár hefur sjálfbærniupplýsingagjöf Festi verið staðfest af Deloitte ehf., þar sem veitt er álit með takmarkaðri vissu. Í ljósi þess að sjálfbærniskýrsla ársins 2025 verður, líkt og á síðasta ári, byggð á ESRS-stöðlunum, sem hafa ekki enn verið leiddir í lög á Íslandi, verður að þessu sinni veitt álit með takmarkaðri vissu á sjálfbærnimælikvörðum í skýrslunni. Aðferðafræði og útkoma tvöfaldrar mikilvægisgreiningar félagsins voru rýnd í byrjun árs 2025. Ekki er um lagalega kröfu að ræða en með þessu fær Festi úttekt og staðfestingu á áreiðanleika gagna og upplýsinga sem tengjast sjálfbærniframmistöðu samstæðunnar.

Langtímamarkmið félagsins er að vera leiðandi fyrirtæki á íslenskum markaði þegar kemur að sjálfbærni.

Markmið ársins 2026

Festi ásetur sér að vera meðal leiðandi fyrirtækja á íslenskum markaði þegar kemur að sjálfbærni og hefur sett sér ýmis langtímamarkmið sem finna má í sjálfbærnistefnunni. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir markmið sem bættust við milli ára eða sérstaklega verður unnið að á næsta ári.

Fyrir frekari upplýsingar um áherslur og árangur félagins í sjálfbærnimálum er vísað í sjálfbærniuppgjör samstæðunnar.